Elsa

Lífið er yndislegt

16.01.2007 14:13:02 / Elsag

Þau eru svo flott

Þau eru svo flott saman..

Mér finnst hún samt vera dáldið mjó....


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 23:05:41 / Elsag

2006

Jæja þá ég ætla að vera dugleg og henda inn smá hvernig árið hjá mér var.:)

Janúar: komum við aftur til Noregs eftir jólafrí og byrjaði skólin aftur og vinnan hjá Kristó. Keppnistímabilið byrjaði hjá mér á fullu og seinasti séns að reyna komast á ólympíuleikana sem gekk ekki:(

Febrúar: fór á heimsmeistaramót unglinga í Slóveníu og var þar í viku. Fékk staf í löppina og þurfti að fara á sjúkrahúsið þar, þannig ég á góða minningu frá því ferðalagi;).

Mars: skóli og keppnir og svo fórum við heim í endaðan mars og ég náði að halda uppá tvítugs afmælið mitt heima en gerði sjálf ekki mikið, því ég var að keppa á landsmótinu þá helgi, vann allt þar enn var að vísu lasin sem var ömó

Apríl: Loksins keppnistímabilið búið:) vorum úti um páskana og fengum margar heimsóknir þennan mánuð. Fyrst komu Svava og Kjartan í skíðaferð í 4 daga sem var bara geðveik helgi bara að brettast og smá djamm. Svo yfir páskana voru Þóranna Elis og Viktor hjá okkur sem var fínt. Og svo í enda Apríl komu mamma og pabbi og við fórum í Skarverennet sem er löng ganga uppí fjöllum.

Maí: var bara rólegt Kristó á fullu í vinnu og ég að læra og æfa lítið... Undirbúa mig fyrir lokapróf. Svava systir flutt á óló sem var geggjað. Svo kom ég í blöðunum og svona:S

Júní: Ég útskrifaðist úr NTG :haha:og þá var komið að því að flytja heim til Íslands og það var ekki eins létt og maður hélt. Var ótrúlega erfitt. Mamma og Pabbi komu í útskriftina og hjálpuðu okkur að flytja heim. Svo var bara byrjað að vinna í sundlauginni á Ólafsfirði.

Júlí: Vinna og smá æfa. Kristó var byrjaður að vinna hjá pabba, því þau voru að byrja að byggja sér hús. Svo var ættarmót hjá minni familíu.

Ágúst: Versló var bara mest lítið gert. Allt komið á fullt uppí sveit að byggja húsið hjá ma og pa. Svo byrjaði skólin í endaðan ágúst, ég fór semsagt í háskólann í lögfræðina og Kristó í VMA í smiðinn.

September: Allt byrjar vel, lítill skóli hjá mér en mikill lestur. Byrjuðum að legja íbúð á ak, mjög fína enn líka mjög dýra:$

Oktober: Skólinn fínn en erfitt samt. Gengur fínt hjá Kristó líka. Byrjaði að vinna hjá Gallup á kvöldin.

Nóvember: Húsið klárt og ekkert smá flott líka. Svava og Kjartan kaupa sér hús á Ólafsfirði ekkert annað en bæjarstjórahúsið. Og ég og Kristó náttlega bara fín, alltaf jafn happý heheh:haha:

Desember: var komin í jólafrí þann 7 og ég náði öllum prófunum og Kristó líka, svo var það bara að vinna smá. Jólin voru æðisleg, étið alveg heilan helling.:)

 Þannig þetta ár var semsagt mjög fínt og ég vona að þetta ár verði jafn gott.  Núna erum við alveg búin að koma okkur fyrir hér á íslandi og allt á réttri leið..:)

En annars þá enda ég þetta bara á einni mynd af okkur kristó á aðfangadag..:)

Kveðja Elsa 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 13:49:47 / Elsag

Ojj

paris hilton Worth 1000 anorexia phtos, skinny photos  Linsay Lohan Worth 1000 anorexia phtos, skinny photos

angie Worth 1000 anorexia phtos, skinny photos  jessica alba Worth 1000 anorexia phtos, skinny photos

scarlett Worth 1000 anorexia phtos, skinny photos  christina aguilera Worth 1000 anorexia phtos, skinny photos

Fann þetta á einhverri síðu og varð að setja þessar myndir inn. voða mjóar.....8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 13:47:49 / Elsag

Komin aftur

jæja nú ætla ég að reyna byrja blogga aftur. Mjög langt síðan ég bloggaði seinast.....

en bara í stuttu máli var sumarið mjög fínt, fór ekki í mörg ferðalög, og var bara mikið heima og æfa smá (ekki nógu mikið samt) og vera uppá landi að hjála við byggingu á húsinu mömmu og pabba. en nenni ekki að segja meira um hvað sumarinu var eytt í.

En já nú er ég flutt til Akureyrar og byrjuð í lögfræðinni:) sem er mjög gaman og strembið. ég var alltaf í miklum vandræðum að velja milli viðskiptafræði og lögfræði og valdi viðskiptafræði í vor en svo á seinustu stundu núna í águst þá skipti ég yfir í lögfræðina og er mjög ánægð með það. Er búin að vera brasas við ritgerð í fra því á fimmtudaginn og hefur það gengið eitthvað brösulega en pabbi hjálpaði mér smá í gær og þannig ég ætla að skila henni á eftir.:)

já mamma og pabbi eru semsagt að byggja hús og það gengur bara vel. Flytja örugglega inn eftir 2 vikur eða eikkað... það verður æðiþegar þau eru flutt þangað....

Men men ég ætla bara að hafa þetta stutt blogg núna....

Kv ELsa


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 18:43:34 / Elsag

utskrift

jæja þá er útskriftin búin:| gaman og leiðinlegt... var mjög fín maturinn og nemendurnir sátu saman og svo voru mamma, pabbi og kristo þar sem foreldrarnir sátu.... þetta var bara mjög gaman. Var dáldið gaman að vera í íslenska þjóðbúninginum og ég fekk lánaðan búning frá Jónínu Hauks og það var endalust verið að hrósa búningnum:) sem var mjög gaman.....  maður er svo stoltur að vera frá íslandi:) hehe. svo fórum við krakkarnir út eftir á.... sem var gegt stuð:) var að kenna nokkrum íslensk orð..... Allir í góðu skapi og bara mjög ánægð að það var smá hittingur hjá okkur eftir matinn...:)

Í dag er búið að vera geggjað veður ég fór með mömmu og pabba á smá göngu og svo fórum við á kaffihúsið.... svo var sólað sig sma;)

Á morgun er svo sma veisla fyrir íslendingana, sma kveðju og útskriftarveisla....

Er búin að setja nokkrar myndir inní albúmið:) frá útskriftinni

ein af okkur kristo saman

bæjo

Elsa


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 08:01:17 / Elsag

VA hvað hun er sæt

Omægod hvað hun er sæt:) alveg það sem maður bjóst við....

En útí annnað þá er ég búin í prófunum jibbý:) mjög skrítið að vera búin í NTG... Mamma og pabbi ættu að vera kominn núna en flugið fór eikkað seint á íslandi og þau rett náðu flugi til Bergen og svo komu ekki töskurnar þeirra, þannig þau gistu enn voru að leggja af stað....

Svo er kvöldmaturinn með bekknum i kvöld ég verð í íslenska þjóðbúninginum og ætla að hafa krullur í harinu... þannig Þórunn ætlaði að krulla mig..

en allavegana er ég bara að horfa á sjonvarpið og ætla að drifa mig á æfingu áður enn mamma og pabbi koma.....

BÆjó

ELsa


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 12:57:24 / Elsag

gott veður

hello.... er bara að lesa, heppinn ég að ég miskildi að prófið var á þriðjudeginum og svo fekk ég að vita í gær að það væri á miðvikudeginum:) þannig lengri tími í að lesa.....

Annars þá er búið að vera mjög gott veður núna. VAr í sólbaði i gær og í dag á stutbuxum og bikinihaldara:) en núna ákvað ég að fara inn áður enn ég byrja að verða rauð eða að brenna.... Svo var ég að skoða veðurspána og það er spáð 20 stiga hita á föstudagin og laugardagin:) og sól... gaman fyrir mömmu og pabba. vona bara að þessi spá standist..

En nóg í bili þarfa að lesa 

elsa


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 21:42:59 / Elsag

Ein vika og einn dagur

jæja það er alltaf að nálgast i heimferðina og alltaf verður enn stressaðari:$ hlakka til en samt á ég eftir að sakna þessar staðar svo mikið.........:cry: Bara að hugsa að ég se að verða búin í skólanum og eigi ekki eftir að fara í hann aftur er sorglegt. En það er gott að vera búin með skólan samt enn samt leiðinlegt.........8| pínu erfitt að lýsa þessu. Alla vegana þá á ég eftir að sakna staðarins og fólksins sem er búið að hjálpa manni mikið hérna og auðvitað skíðaaðstöðuna sem er hér.......:(  Get næstum eða ég meina ég get farið að gráta að maður se að fara. En ekki það að mér langar ekki heim... maður er bara búin að vera hérna svo lengi....:) er stolt af mer hvað eg er dugleg að hafa farið í annað land lært nýtt tungumál og kynnst fólki og seð hvernig það er að æfa skíði á FULLU. Gera eitthvað öðruvísi og á aldrei eftir að sjá eftir þessu.... er svo feginn að mamma og pabbi ýttu aðeins á eftir mer að fara hingað út:) En hver veit nema maður eigi eftir að flytja hingað einhverntíman aftur þegar kristo er orðin smiður og maður er búin að læra eitthvað:)

Ég fer í munnlegt próf á þriðjudaginn og ég kom upp í trúarbragða-og siðfræði. sem er fint er búin að vera svona ágætlega dugleg að lesa.... ætla að lesa og lesa á morgun....

Svo koma mamma og pabbi á miðvikudagsnóttina þau koma  um miðnætti til bergen og ætla svo að keyra um nóttina.....svo á fimmtudagskvöld þa er avslutningsfest eða svona kvöldverður fyrir 3 bekk eða þá sem eru að hætta og ég ætla að taka mömmu, pabba og kristo með:) og svo ætla ég að hafa kannski smá veislu fyrir íslendingana á laugardaginn eða eitthvað. Ekkert ákveðið ennþá.... En allavegana þá er ég búin að ákveða að fara með mömmu og pabba i göngutúra í kringum vatnið og sýna pabba aðeins hvernig það er hér á sumrin því hann hefur bara verið hérna á veturnar;) þótt að sumarið sé voða lengi að koma hingað...:( en það verður mjög gaman að fá þau hingað...

En annars hefur ekki margt skeð þessa helgi. Á föstudaginn fór ég í skriftlegt próf og gekk ágætlega... Svo loksins naði ég að fá sjalfan mig út á æfingu og var ekkert voða löng samt þannig að þegar ég kom heim spurði ég kristo hvort við ættum ekki bara að fara uppá fótboltavöll í fotbolta.... sem við gerðum og það var mjög fínt bara:) æfði svo þegar ég vaknaði á laugardaginn, skruppum svo aðeins í bæinn og svo heim og ég ekki dugleg að lesa sofnaði bara ´þegar ég var búin að lesa fyrstu 15 síðurnar8| sem er ekki gott því það er mikið að lesa og svo fekk ég mér göngutúr um kvöldið heim til Evu og ná í einhver blöð í sambandi við prófið... Elska að labba svona á kvöldinn sólinn að setjast og logn og með ipodinn það er mjög gott að fá ser friskt loft svona á kvöldin......

ídag var bara slappað af, kristo kom með mér á stutta æfingu og svo vorum við bara að koma úr mat frá Bjössa og þórunni.... og ég er orðinn svo þreytt núna.... ætla að reyna að lesa nokkrar blaðsíður og svo að fara sofa....

Þannig bæ í bili

Elsa


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 09:11:52 / Elsag

Shiloh Nouvel Jolie-Pitt

Angelina Jolie og Brad Pitt eignuðust dóttir í gærkveldi:D:haha:. Hún fæddist í Namibíu, þar sem þau Jolie og Pitt hafa dvalið seinustu vikur, og hefur fengið nafnið Shiloh Nouvel Jolie-Pitt8| Skrítið nafn. Hlakkar til að sjá myndir af henni.

eiga svo sæt börn fyrir

bara sæt:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 08:48:44 / Elsag

Próf:(

Profin að byrja hjá mer núna.............:| ég fer i 3 próf, eitt 5 tíma norskupróf, í skriftleguprófinu kom ég upp í samfélagshagfræði og svo fæ ég ekki að vita hvaða prófi ég kem upp í munnlegu fyrren næsta föstudaginn........... Annars þá hef ég viku til að lesa fyrir samfélagshagfræðina, þetta er svona 5 tíma próf... EN núna er ég bara heima.... enginn skóli, á ekki eftir að vera neinn venjulegur skóli núna, bara lesa og lesa:$

Er að fara á æfingu klukkan 12 hlaup og styrktaræfing með Evu... í gær var ég reyndar mjög lengi að koma  mer út á æfingu, Kristo nennti ekki með mér:( þannig ég hljóp ein i 2 tíma með ipodinn minn.....:lol: var svo bara fínt...

það var snjór yfir öllu þegar ég vaknaði í gærmorgun enn var allt farið aftur seinnipartinn og núna er bara sól:)

Svo þarf ég að senda umsóknina í háskólan á manudaginn, ætlaði að vera löngubúin að senda hana heim ég get bara ekki valið á milli viðskiptafræði eða lögfræði:S mér finnst ótrúlega erfitt að velja. Held samt að viðskiptafræðinn passi mér kannski betur því mer finnst stærðfræði skemmtilegasta fagið og gaman með tölur enn lögfærðin er mikill lestur og mér finnst það svo leiðinlegt að lesa og lesa.... enn finnst erfitt að sleppa lögfræðinni.....:$

Ætla bara að taka því rólega um helgina og lesa.... og vera mjög dugleg að læra...

En annars þá enda ég þetta á mynd af mér þegar ég og kristo vorum á leiðinni til Noregs í áugst árið 2004

Hehe þurfti að minnka myndina dáldið mikið þannig ég er skrítin í andlitinu. Skiptir ekki , það er svo flott útsýnið:)

Elsa


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 18:59:02 / Elsag

Flytja heim

 

Ég flyt heim 12 júní8|:) semsagt eftir 3 vikur og 1 dag... hlakka til enn er samt stressuð fyrir því:| Mamma og pabbi koma 8 júní:) en alla vegana þá er það að skella á að maður fari heim og í háskóla ef ég hef nóg af einingum til að komast inn. Var að pæla í að fara í lögfræði eða viðskiptafræi ég get bara ekki ákveðið mig... og svo þarf ég að finna vinnu í sumar.. Og svo að fara að leita af íbúð inná akureyri....

Ég fór á 2 og hálfstíma hjólaæfingu í gær og var dauð eftir hana gat ekki staðið í lappirnar af þreytu:( Eitthvað slöpp. Hittumst nokkrir íslendingar í gær og horfðum á Eurovison....

Æi nenni ekki að blogg meira hef ekkert að segja.........................


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 18:16:38 / Elsag

DV-skandallinn

ja maður fékk að vita af frettini i Dv i gær.... Pabbi sagði mer það og mer brá nú þokkalega fyrst8|. EN það er svo pirrandi að maður er bara hérna i Noregi og allt í einu er mynd af manni í Dv og i grein um fíkniefni...:( og ég er svo á móti fíkniefnum þannig þetta er bara mjög leiðinlegt og svo var verið að tala um hvar hún hafi geymt þessi efni og þá finnst mer ennþá verra að það sé mynd af mér. Sérstaklega kannski þekkir fólk mig í útliti en man ekkert hvað ég heiti og heldur að þetta se ég.. það er EKKI gaman:whut::cry:En ég er mjög feginn að vera hérna í Norge þá verð ég ekki eins vör þetta. En var ekki heima i gær þannig ég var að skoða þetta á netinu áðan og horfa á fréttirnar á netinu. Skrítið að það se hægt að gera þessi mistök, ég meina mér finnst þeir ekki vera gera vinnnna nógu vel þegar svona gerist, bara farið á netið og skrifa nafnið... svo bara tekið næstu mynd. En allir geta gert mistök og ég vorkenni manninum nu sma sem gerði þessi mistök. EN annars þá voru þeir nu fljótir að leiðrétta þetta og gott að það var gert i fréttunum og svoleiðis. Vona bara að flestir sáu frettirnar i gær:lol::D

Allir að segja mer að kæra...8| Ekki búin að taka neina ákvörðun um það ennþá.... Er að hugsa málið:|

En annars margir búnir að senda sms og takk fyrir að skrifa á síðuna;) Kvittið endilega núna;) alltaf svo gaman þegar það er kvittað:haha:

Hilsen

Elsa skíðastelpa,

sem átti ENGAN þátt i þessu fíknaefnamáli´......................


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 17:53:40 / Elsag

..............

Fyrirgefið hvað ég hef verið léleg að blogga:S Eg hef alltaf ætla að blogga enn svo bara nenni ég ekki eða hef ekki tíma... En annars er allt fínt að frétta:) bara skóli og maður er byrjaður að æfa aftur.... annars þá var ég að reikna æfingadagbókina mína og ég æfði 540 tíma frá 1 mai til 31 april... mer finnst það ekkert smá mikið hef aldrei æft svona mikið áður8| var lika næstum og mikið..... átti ekki að auka æfingarnar svona mikið, ég átti að æfa 465 tima..  En allavegana var fyrsta interval hlaupaæfinginn i dag og var dalítið mikið þreytt:$ En bara venjulegt að vera lelegur á fyrstu erfiðu hlaupaæfinguni..

annars þá var ekkert voða merkilegt gert um helgina. Keypti mer saumadót og var bara á fullu að sauma i 3 barnamyndir. Og svo fórum við í matarboð til Margretar hjá simma og Heiðrúnu og Kristo kikti aðeins út.............. svo á sunnudaginn var letidagur, bakaði skuffuköku og svo pizza i matinn og við keyptum fullt af nammi8| Og svo 1 mai buðum við simma heiðrúnu og Margreti í kaffi í vöfflur og skúffuköku... þannig þetta var fín helgi. Svo kom Kristo 2x með mér að skokka:) ekkert smá ánægð með það, hann keypti sér loksins hlaupaskó á skarverennet og föt þannig hann hefur enga afsökun lengur:) hehe

En já það var æði að hafa mömmu og pabba hér og gegt að ganga með þeim skarverennet:) Það voru svo óturlega margir að ganga held að það hafi verið um 12000 manns. við vorum i 5 tíma að ganga þessa ca 40 km og reyndar var stopp og matarpása og það var bara svo ótrúlega gott veður að maður var ekkert að flýta ser. Brann þótt ég hafi borið 3 sinnum á mig sólaráburð:$ En svo fórum við útað borða....  já og svo var verslað daldið mikið i skarverennet buðinni:) ekki eg samt heldur pabbi en samt var hann að versla mikið fyrir aðra, en eg fekk hlaupabuxur, 2 boli og jakka.

Þetta er bara fyrsta brekkan og maður var endalaust að flakka a milli sloða og fara framhja...

Mamma og pabbi

Svo erum við að fara til Lillehammer á föstudaginn, er russahittingur , semsagt fylleri og tónleikar og soleiðis var samt að pæla i að fara þangað á föstudaginn og sleppa laugardeginum og fara i bæinn með kristo og kobba.... ætla bara að sjá til hvernig þetta verður.

Svo er alltaf að styttast i að maður fari að flytja heim8| er orðin stressuð. en hlakka samt otrúlega mikið til;) Geta hitt fameliuna næstum þegar maður vill, en ég mun samt sakna þess geðveikt að vera ekki hér...

EN heyrðu þetta er nog i bili 

 Elsa

Komnar nýjar myndir


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 13:27:45 / Elsag

Ma og Pa alveg að koma;)

þá eru Elli, Þóranna og Viktor farinn... þetta páskafrí er búið að vera ekkert smá fljótt að líða... Það var nú bara mikið slappað af.  Við erum búin að sýna þeim allan bæinn og fórum með þau til Gol og svo fór viktor og Kristo 2 á snjóbretti og ég einusinni. Ja og svo fórum við 2 sinnum úta lífið... sem var bara mjög gaman og við tókum fullt af myndum... það var bara mjög gaman að hafa þau hjá okkur þótt það hafi verið dálítið þröngt... :)

Ja þau fóru niðureftir á bílnum og svo koma mamma og pabbi á honum á morgun:D:haha: hlakka svo til að fá þau. Eg og pabbi ætlum að fara Skarverennet saman, það er semsagt skíðaganga sem er 40 km og við ætlum ekki að fara á tíma heldur bara þannig við getum sólað okkur ef við viljum. ég mamma og Svava fórum hana seinast en þá bara hálfa. Þetta er bara langt upp á fjalli.... herna eru nokkrar myndir fra i fyrra...........

Herna að fara leggja af stað

geggjað veður

Alla vegana þá er russaskírn í kvöld. þá byrjum við að ganga í russafötum. og svo ætla allir til Gol á fylleri ætli ég fylgi ekki bara hópnum. Eg nenni bara ekki að vera lengi þess vegna er svo pirrandi að hafa ekki bíl svo ég geti bara keyrt sjálf.

en ég ætla að setja myndir inná myndasíðuna

vi snakkes seinere;)

 

Elsa


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7